Go´daginn
19.01.2007 16:18:07 / eiki

Bolti í kvöld


Jú Eiki er að keppa í fótbolta í kvöld með FC Munda... við munum mæta strákonum frá Eimskip klukkan níu í Fífuni í kópavogi og ætlum okkur ekkert annað en SIGUR.. Wish me luck!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 23:30:10 / eiki

Eitt stutt...

    Hæ Alfa.

» 3 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 22:56:48 / eiki

Taki til sín sem eiga það!!!!!


ÉG VILL EKKI HAFA ÞAÐ AÐ FÓLK SÉ AÐ NOTA ÞESSA SÍÐU MÍNA SEM ÉG NOTA SJÁLFUR EKKI MIKIÐ TIL AÐ KOMA MEÐ SKÍTKAST ÚT Í VINI MÍNA OG FJÖLSKYLDU MEÐ ÞVÍ AÐ COMMENTA SLÓÐUM Á AÐRAR SÍÐUR ÞAR SEM LASA MÁ BLOGG UM VIÐKOMANDI FÓLK......
EF SÁ EÐA SÚ SEM ER AÐ GRAFA UNDAN OG KOMA MEÐ ALLSKONAR NIÐRANDI ORÐ UM VINI MINA OG MITT FÓLK HEFUR Í SÉR EITTHVAÐ SEM HEITIR KJARKUR ÞÁ MÁ SÁ AÐILI BARA HAFA SAMBAND VIÐ MIG ELLA HALDA KJAFTI...............TAKK FYRIR....

PS:ÖLLUM COMMENTUM Á ÞESSA VEGU VERÐA TAFARLAUST EYTT ÚT!

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 16:34:14 / eiki

Jæja þá


Þá er kallinn kominn með íbúð...
Allir þeir sem vettlingi geta valdið og nenna eru velkomnir til mín á Framnesveginn til að hjálpa mér með draslið mitt inní íbúð um helgina....... Alveg kominn tími á kallinn að komast í gott húsnæði

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 16:44:20 / eiki

hmmm


Já ég veit að ég er latur að skrifa....... þetta kemur allt bráðum

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 20:07:58 / eiki

Ný færsla gjörið svo vel


Ok svi við byrjum á byrjunini...
 VESTMANNEYJAR-ÞJÓÐHÁTÍÐ
GAAaaarrrrrgaaaanddiiiiiiiii sniiiiiiillliiiiiiiii PUNKTUR is
Þetta var snilld útí eitt skal ég segja ykkur gott fólk og herrar.
Við Kristó mættum galvaskir til eyja á 5tudegi um hádegisbil og þá var strax og eigi síðar byrjað að drekka öl. Henntum okkur í Ásaveginn þar sem Adda kærasta hans býr ásamt foreldrum sínum og fékk ég að tjalda þar í garðinum,,, svona semi útilega hjá Eiken.
Nú það var vitaskuld tekið vel á því ekki annað hægt sko, fór á tónleika í einhverii skemmu þarna með held ég 5 hljómsveitum og 2 af þeim voru Hoffman og Foreign monkeys... allgjört dúndur.. Þaðan var farið á 67 og sötrað aðeins. Íris kom þangað og sótti mig og við fórum á Prófastinn þar sem Dr.Spock spilaði og lék fyrir dansi... Man nú reyndar ekki mikið eftir því kvöldinu enda eins og Íris sagði að þá var Eiki wasted þetta kvöld.
NÚ!!! Á föstudag fórum við Íris að borða á 67 og ég arkaði svo heim í sturtu eftir það enda var ég hell sko....... Það kvöld var kjötsúpa í boði heima hjá foreldrum Óla og þar var drukkið og haft gaman. Þá kom Ása með Þuru vinkonu sína og urðu þær mínir nánustu grannar í garðinum.
Þessi helgi var það mikil snilld og mikið gekk á að það er varla hægt að koma því öllu fyrir sko.... frasarnir sem fuku, uppnefni og gælunöfn, drykkir og leikir..... allt þetta var klikk... enda segja myndirnar ýmislegt og því miður er ég ekki með myndasíðu.. múahahahahaha helvítis homminn þinn þarna ógeðið þitt þarna homminn þinn og ógeð uuuöööghhjj......  hahahahahaha þeir hlægja sem skilja  ;)

En núna var ég að koma að norðan, af Fiskideginum mikla á Dalvík.
Fórum við feðgar þangað bara ég og Alexander Máni.. Tjölduðum, takið eftir, í garðinum hjá Emmu tengdamömmu Vals bróður.... Þetta var bara æði..
Hann fékk að kynnast frændsystkynum sínum að ég held í firsta sinn svona e-ð að ráði allavega... Fórum inná Akureyri líka og skoðuðum ýmislegt sko.... Bara svona "okkar" tími saman,, enda kominn tími til .... Nú er maður bara kominn heim og heima er bezt og allt rjómandi gott..... þar til næst, lifið heil...

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 20:13:05 / eiki

Pínu þynnka

Jújú ég er pínu þunnur sko.... Skrapp á pínu djamm í gær, þá sjaldan maður lyftir sér upp.
Fór til Fjölla þar sem ég átti að fá tíma og klára það sem hálfnað er en neiii han beilaði á mér eins og svo oft áður.... Þá bara rölti ég til Öddu og Rakelar og rakk með þeim þar til við röltum á Dillon.. Þar hitti ég eiginlega bara alla sko, Halla, Jónda og Jónas, Krúsa og Briet, Kristó og Gunni voru að vinna..... Þetta var algot djamm bara jájá... Núna sit ég einmitt á Dillon að lesa og undirbúa mig fyrir morgundaginn, minn firsta vinnudag í 8 mánuði pælið í því!!!! Jú ég er að lesa reglugerðir og lög um fasteignasölu og bladeblíbla.. Rosaleg lesningk sko,,,,, EEENnnnnn verð víst að gera þeta... Hlakka nú bara nokkuð mikið til að byrja í vinnuni..

En annað mál. ÞJÓÐHÁTÍÐ Í EYJUM ER EFTIR 11 DAGA!!!!!!!
Þjóðhátíðarlagið í ár er algjört PRUMP verð ég að segja svo haldið verður bara í þau gömlu góðu sko það held ég bara........ Vona bara að það verði gott veður eins og er núna.. Hér á laugavegi 30 í bakgarði Dillon er 19 stiga hiti og klukkan orðin 20:22

Þjóðhátíðargallinn okkar vina verður yfirvaraskegg/motta..... svo byrjið að safna þið sem ekki eruð byrjaðir!!!! Nú svo allskonar hattar og ót, minn hatur er bast-kúrekahattur sem er bara nett cool sko,, er að spá í að hengja í hann korktappa eins og Ástralarnir í neðra gera það... en ég C bara til með það.... Búinn að kaupa allt fyrir versló svo nú er bara að telja niður... og vinna..

En jæja.. ég ætla að spjalla við strákana og hætta þessari bloggvitleysu í bili....
Þar til næst, verið hress, ekkert stress, bless bless...............

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 14:45:23 / eiki

Vinna??


Kallinn fór í atvinnuviðtal í gær.... Held ég hafi nú neglt þetta sko.. við erum að tala um það að Eiríkur Rósberg Eiríksson hinn ofuróheppni er vonandi að gerast fasteignasali.. Já þið lásuð rétt, FASTEIGNASALI.....
Ekki var búist við að ég mundi henda mér í vinnu þar sem maður þarf að vera bara vel klæddur, í skyrtu og með bindi helst og spurning hvort ég þurfi að klippa af mér lubbann?
En það er hinsvegar ekki víst að ég fái þetta en 7-9-13 krossleggja fingur.....
Er kominn með ógeð á að hanga heima sko......

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 22:25:17 / eiki

Verslunarmannahelgin 2006

Jú. Þá er það ákveðið, Eiki verður á þjóðhátíð í eyjum um versló..
Þetta var ákveðið með engum fyrirvara eiginlega en gott plan samt sem áðu.
Ætla ég að fljúga frá Bakka á miðvikudeginum og til baka a mánudegi.... þetta verður geggjað, hef ekki farið á þjóðhátíð síðan 1998.... púff það er orðið of langt síðan sko..
Vonandi á ég eftir að sjá sem flesta þar en samt efast ég um það,,, eru ekki flestir af mínu fólki á leyðinni norður??? Well anywho, hvert sem þið farið.. GÓÐA SKEMMTAN!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.07.2006 16:39:52 / eiki

ÞUUUUNNUUUURR!!!!!!


Já ég er heldur betur þunnur í dag sko.... Fór á alveg massíft fyllerí í gær, gerði nú samt engann skandal sem betur fer sko......... held ég

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.07.2006 20:58:22 / eiki

Er komið að því?

Jæja, nú er Eiki búinn að vera edrú í mánuð og kannski kominn tími á gott djamm, eða hvað... ég er að velta fyrir mér hvort ég ætti að henda mér út á lífið í kveld.....

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 19:47:15 / eiki

14. júlí 206


Mamma mín á afmæli í dag.... Til hamingju gamla!!!!!!

Bara svona til að segja e-ð á þessu blessaða bloggi..

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 19:25:12 / eiki


Jájájá ég veit ég er leti leti leti letibloggariiii.......
Hef bara ekki frá neynu að segja í raunini.................

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 02:17:53 / eiki

Hver man ekki eftir Harry og Heimi??

Fleygar línur úr útvarpsleikritinu "Með Öðrum Morðum" sem Harrý og Heimir fara með. Þetta er ábyggilega það fyndnasta sem ég hef nokkurntíman hlustað á:D

símon:
gott kvöld og hverjir eru þið með leifi?
heimir: harry og heimir með leifi
símon: haa?
heimir: já við erum með einkaspæjaraleyfi
harry: þegiðu heimir
heimir: ok

harry: ég er harry rögnvalds og þetta er hundtryggi aðstoðarmaður minn heimir snitsel
heimir: *gelt* *gelt*
gaur: og ég er símon möllersson verkfræðingur
heimir: ertu verkfræðingur?
gaur: jáá
heimir: heyrðu ég er búinn að vera með verk í mjöðminni í marga daga, gætiru nokkuð kíkt á það?
harry: þeeeegiðu heimir
heimir: alveg datt mér í hug að þú myndir segja þetta

gaur: þið hafið þegar séð of mikið.. ég hætti ekki á að sleppa ykkur héðan á lífi
heimir: nei viltu ekki bara sleppa okkur héðan á vélsleða eða eitthverju svoleiðis?
harry: hvað er eigilega um að vera hér?
gaur: svo þið hafið ekki enn komist að því? nú jæja, það gerir þó ekki mikið til þó að ég segi ykkur það, þið verðið hvort sem er ekki til frásagnar.. ykkur verður komið fyrir kattarnef
heimir: harry, þessi maður er algjör skepna
harry: ég veit
heimir: hann ætlar að koma okkur fyrir kattarnef
harry:
heimir: já og ég er með ofnæmi fyrir köttum

heimir: hvað skildi þetta fólk vera að gera?
harry: það er ekki gott að segja, heimir
heimir: finnst þér það ekki.. þér hefur alltaf tekist það hingað til
harry: hvað?
heimir: að segja heimiir
harry: hvað áttu við?
heimir: að segja heimir..
harry: heeeeimiiir
heimir: sko bara þú getur það vel

harry: heimir, sérðu þetta?
heimir:
harry: hvað er þetta?
heimir: þetta er puttinn á þér

harry: heimir er þér ekki sama þótt þú sofir í efri kojunni? ég er nebla lofthræddur
heimir: jújú en ertu lofthræddur?
harry:
heimir: ertu hræddur við loft?

Harry: HEIMIR VIÐ ERUM ÁTTAVILTIR!!
heimir: nei við erum bara 2 villtir.. sjáðu, einn, tveir

harry: aaaah þarna skall hurð nærri hælum
heimir: ha? var þetta ekki skriða?
harry: æj þegiðu heimir

*ljósin slökkna*
harry: feldu þig bakvið hurðina díana
díana: hvaða hurð? ég sé ekki rassgat, hvað eigum við að gera?
heimir: til að sjá rassgat? þú þarft bara að kveikjá kerti og...
harry: þegiðu heimir

harry: ahhh við erum komnir, við þurfum að senda út neyðarkall
heimir: hvar er hann?
harry: hver?
heimir: nú neyðarkallinn

*!!kabúmm!!*
harry: ha? hvað var þetta?
heimir: ég var bara að ropa

gaur: Þið munuð svo sannarlega fá fyrir ferðina
heimir: já það munu vera 23.000 krónur

heimir: harry
harry: hvað?
heimir: ekki líta við
harry: hvað heimir?
heimir: ekki líta við harry
harry: hvað er á seiði heimir?
heimir: það er maður fyrir aftan þig með hníf!
harry: guð minn almáttugur, hvað er hann að gera?
heimir: harry..
harry: já?
heimir: hann er líka með gaffal
harry: gaffal?
heimir: já, og hann er að borða!
harry: borða? og hvað er svona dularfullt við það?
heimir: ekkert ég var bara að segja þér frá því

**seinna**
heimir: harry ekki líta við
harry: nei heimir, ekki aftur
heimir: ekki aftur hvað?
harry: ég veit að það er maður með hníf fyrir aftan mig
heimir: nei harry það er ekki það.. hann er með.. hann er með..
harry: hvað heimir?
heimir: hann er með teskeið.. og hann er byrjaður á desertinum
harry: ooohhh
heimir: neineineinei það er fluga í súpunni minni
harry: æj nei heimir þessi er gamall
heimir: ha?
harry: farðu nú ekki að segja eitthverja flugnabrandara þó við séum að éta súpu á veitingastað
heimir: já en það er fluga í súpunni minni
harry: þetta eru svo úreltir brandarar maður
heimir: já en það er...
harry: alltí lagi þá hvernig fluga?
heimir: nú auðvitað fiskifluga, þetta er fiskisúpa heheh
Gaur: oh ú.. æjj
heimir: harry ekki líta við.. maðurinn fyrir aftan þig er dauður!

» 3 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 00:28:24 / eiki

Ferðasagan....

LONDON vs FLORENSE

26.05.06

Ræs rétt um klukkan 03:30, STURTA og ná í Kristó og Jónda. Mættir vel snemma á völlin til að geta drukkið smá öl áður en við tökum flugið til London.. Hittum Lindo og vinkonur, þær voru á leyðinni til DK a fyllerí og verslunarferð. Fréttum af Kristínu og Áslaugu á leyðinni, en þær áttu flug hálftíma á eftir okkur til London og komið var að fólk fór um borð í þeirra vél,,, shit stelpur það verður tæpt.

Það var nú bara sofið í vélini á leyðini út sko. Tókum svo lest frá Standsted til Liverpool str í London og taxa þaðan á London Bridge. Þaðan röltum við a The Geourge að bíða eftir Rachel og að sjálfsögðu drukkum við bjórinn eins og vatn. Svo kom Rach og við drukkum meira, fórum svo á Dover og geymdum töskurnar og héldum áfram að drekka. Fórum svo ég,Kristó,Rachel,Bret og Dan til Brighton í partý til Nash sem er Ástralskur vinur hans Kristós.. Gátum nú ekki komið tómhenntir svo við keyptum trá!! Þetta partý var klikkað sko, um 80 manns ef ekki meir sko. Í það heila held ég að ég og Kristó höfum drukkið 30 bjóra hvor síðan við lenntum í london þarna undir morgun, sem og hellings ísl.brennivín-opalskot og tequila..

Sofnuðum í sitthvorum sófanum sem var í lagi því planið var að gista....

27.05.06

Usss,, það er kominn tími á að vakna,,.. Krakkarnir byrjaðir að þrífa höllina, 5-6 ruslapokar af tómum dósum og flöskum og gólfið ógeðslegt.

Áður en við gátum rifið okkur af stað, pöntuðum við pizzur og horfðum á Finding Nemo sem er besta þynnkumynd sem ég hef séð.. haha..

Eftir hana tókum við túristarölt í Brighton, snilld sko, geggjað að vera þarna, langar að fara aftur. Þá fórum við á pöbb og fengum okkur kveðjubjór með Nash. Lest til London!!!! Náðum í töskurnar á Dover og fórum heim til Rach þar sem við gistum. Drukkum öl,rauðvin ogrestina af opalinum..

Sturtuðum okkur og fórum ádjammið. Hittum Telmu og Gústa á djamminu og fórum við útum allt eiginlega sko. Ég og Gústi verslðum gítarboddý úr skotti á e-m bíl á 25 pund stk,, bara djók... Spiluðum pool á "members only"polstofu og drukkum þar nokkra, fórum þaðan á Blow up metro sem er snilldar rokkstaður.. mæli með honum. Þegar honum var lokað fórumvið heim, kláruðum rauðvínið ég og Kristó og vöktum Rachel, alltaf jafn ömurlega hressir þessir helv ísalendingar..

28.05.06

Jæja, Eiki vaknaði um hálf ellefu en ekkert lífsmark ermeð Kristó frekar en oftast.... JÚ!!!!! Rétt um hálf tvö rankaði hann við sér og við fórum í tube,,undergrpundinu til Campden þar sem við ætluðum að versla og helling sko... Nei, komumst ekki í stuð fyrr en eftir 3 bjóra en þá var líka að loka bráðum. Gústi og Telma komu þangað og við borðuðum á frekar vafasömum indverskum stað..... Jú, öll erum við íslendingar og fórum a djammið.. Hittum svo á Spice of life i Soho þær Kristínu og Áslaugu og slógust þau í hópinn... Hmm 6 íslendingar saman á djammi í London?? er það sniðugt,,, já það var það reyndar.... Fórum þaðan á 12 bar club og hittum Rachel... Þaðan var farið heim til Rach til að taka saman dótið okkar því við vorum að fara til Ítalí.... Bonjoirno!!!

29.05.06

Jæja, mættir félagarnir á Standsted og GMG, gellan í deskinu er með meiri barta en Kristó mun nokkurntíman getað safnað,,, "wolferine"

Allavega, við vorum vel rólegir á því bara, fengum okkur bjór og ógeðis pulsur og spáðum ekkert í hvenar útkall í vélinaværi sko. Allt í einu stökk Kristó af stað og sá að það var "final call" í vélina okkar...... Auðvitað vorum við langsíðastir en það var í lagi, við sofnuðum bara og sváfum líka í lestini frá Milano til Florense.... Í Florense tóku þær Íris og Ariana á móti okkur, oo svo sætar í sér. First var farið á hótelið og skilað töskudraslinu og þaðan á rölt. Fórum svo á Mexikóskan stað að borða sem var snilld og eftir það taumlaust djamm. Ég varð reyndar vel þreyttur fljótt um tvö en þá var kominn tími á Kristó að fara til USA.....

30.05.06

OOooooaaaawwwww........ Klukkan orðin EITT og ég að drullast á fætur. Ákvað að skella mér á röltið bara og labbaði með ánni innað aðal svæðinu... Settist niður við styttuna af Davíð og þar hitti ég Írisi og við fórum á Moyo að borða smá og ná í Ariönu... Þaðan röltum við á Michelangelotorg sem er lengst uppí e-rri brekku/hæð og skoðuðum kirkjuna og kirkjugarðinn þar líka.. En þvílíkt útsýni þarna mar.. úfff..

Svo fórum við á rölt og ég keypti mér pickup á gítarinn minn sem ég mun setja saman.... einhverntiman..... kannski...... jájá....

Þá var komið að því að skoða íbúðina sem Íris var að flytja í og jújú þetta er ágætis hola.. Fórum svo í "hina" íbúðina og komum við í "chinabúðini" og keyptum bjór og rauðvin, tókum svo með okkur eldbakaðar pizzur og fengum okkur snæðing heima hja Írisi.. Sátum þar svo í spjalli,spili og spurningum og fórum svo út á rölt,,pöbbarölt. Hittum Anitu og Önnu sem eru frá DK og Svíþjóð..Klukkan 2 fóru stelpurnar á the blob en ég fór a hotelið bara...

31.05.06

Dagurinn tekinn snemma í dag!!!

Vaknaði kl 10:00 og fór í sturtu og strunsaði út í ægilegum túristafíling.... Í það miklum fílingog látum reyndar að ég labbaði beint á lögregluþjón sem var í skotheldnu vesti og með vélbyssi,, "mi scusi" sagðiég bara,, "bonjoirno" sagði hann og þá ég líka og svo hló ég og labbaði í burtu... Ég tók röltið meðfram ánni og fékk mer morgunmat og fór þá að skoða safn, "Palazzo Vecchio Quartieri monumentali" "Musai Fiorentini" Það var geggjað flott sko. Tók helling af myndum þar inni þangað til að það kom til mín vörður og sagði að það mætti ekki taka myndir þarna inni,, aftur "mi scusi" Þaðan fór ég á lítinn götumerkað sem er ekki frásogunni færandi nema ég var sakaður um stuld.... Þá kom löggan og vildi leyta á mér og í töskuni minni,, ekkert mál, ég var saklaus... eins og kom í ljós.. Svo hitti eg Írisi sem var frekar þunn sko. Við fengum okkur snæðing á grískum stað "Dioniso" sem var ágætt sko, gellan sem var að vinna var greinilega ekki að nenna því.. Svo seinna um kvöldið fór ég með stelpurnar út að borða ogég ætlaði mér sko að fá mér safaríka-feita-bragðgóða-massíva steik.... allt kom fyrir ekki, diskurinn minn kom og þetta var eins og álegg með sósu... Planið var að fara á underground jazzklúbb en honum var lokað.. en það reddaðist nú samt á öðrum stað..

Þaðan labbaði ég heim í grenjandi rigningu og það sem gerðist á heimleiðinni fer ekki í þessa dagbók, þið sem vitið, vitið bara..... en það eina sem ég get sagt er,, GO BOSTON!!!!!!!

01.06.06

Ussss, vaknaði svona vel hress og í góðu skapi.. Hví ætli það C??? Fór á Bargello safnið til að flýja rigninguna og þaðan fór ég að fá mér frapochino og öl á kaffihúsi á meðan ég beið eftir Írisi og Ariönu. Fórum í vínbúð þar sem hægt er að kaupa vín sem er bruggað á staðnum,, snilld. Versluðum vín og fórum í garð sem var þarna nálægt með teppi og rauðvín og fleira... geggjað næs. Fórum heim í fataskipti og hittumst aftur á sama stað... Þá var að byrja kröfuganga, hellingur af fólki, fremst voru 20-25 gaurar með trommur og svo bíll sem spilaði fína music...

Við vorum komin með kinamat og helling af rauðvini og vafningum... Settumst niður og drukkum og drukkum og fengum okkur vafninga... ;)

Fórum svo á pöbbarölt en vorum bara fyrir utan staðina að drekka okkar eigið og með því.... svo var kominn tími á heimleið...

02.06.06

Í dag er þjóðhátíðardagur Ítala..... og á morgun fer ég til London aftur.

Svaf út.. Tók draslið mitt til þvíkominn var tími á að skra sig útaf hótelinu... Ciao hotel Duilo...

Fór á internet caf´e í ca 2 tíma, pantaði hótel í London/Notting Hill. Fór til stelpnanna sem voru frekar þunnar verð ég að segja sko. Tók ég því rölt í leyt að mat. Hitti svo gellurnar og fórum við að borða síðar um kvöldið á Zao zao, fengum ogeðis pizzur....

ÞAðan röltum við á bar að kaupa simainneign fyrir Írisi og þaðan í sjoppu að kaupa öl, þegar þangað var komið fattaði Íris að hún hafði týnt veskinu. Hún hringdi í Lucas og bað hann að tjekka á barnum. Þá röltum við heim til írisar og biðum, en hey, bíddu nú við,, hvar er síminn minn?? Ég búinn að týna símanum mínum svo Ariana hringdi á hann, það svaraði eldri maður, afgreiðslumaðurinn í sjoppuni á horninu þar sem við keyptum bjórinn.... púff bæði veskið og síminn komin í leytirnar... Ok, erum heima hja Írisi og röltum á lestarstöðina því kominn var tími á mig að fara, en bíddu, lestarstöðin lokuð? Bent á að fara að aðra lestarstöð og þegar þangað var komið var lestin FARIN!!!! ég keypti mér því miða í næstu lest sem fór klukkan 4 í stað 01:45.... OK,, tók lestina kl 4 og hún tók mig til Bologna, þar skipti ég um lest og fór til Milano...

03.06.06

Milano.....

OK, kom til milano klukkan hálf tíu, flugið mitt fer klukkan tíu,, SHIT:::......

Jæja, fer með rútuni til Bergamo þar sem flugvöllurinn er og fæ ég að vita að ekki er laust nema í vél sem fer klukkan 22:10.. en ég var settur á standby á vél klukkan 19:15 og sem betur fer komst ég með henni... OK. kominn til London eftir ömurlegt ferðalag þennan dag og fór í sturtu á hotelinu og beina leyð í rúmið.. Góða nótt...

04.06.06

Ahhhh,,, góður svefn,, kærkomin hvíld.. Fór í smá göngutúr í Notting Hill þar sem hótelið mitt var. Fór í second-hand búðir ogverslaði mér 2 skópör... Fór svo á McDonald og borðaði þar með ca 78 ára,lítilli heyrnalausri konu, sem var frekar sérstakt en fyndið.... Talaði við Rach, hún er að koma með töskuna mína. Fór aðeins á netið og þegar Rachel kom fórum við á Prince Albert að sötra bjór.. sátum frekar lengi miðað við að Rach þurfti að fara heim að laga til því hún var að flytja og vildi skila íbúðini vel af sér.... Þá fór ég á hótelið og settist bara í setustofuna og hitti þar mann frá canada,Christian. Hann var fínn sko, bauð mér í nokkra bjóra og við spjölluðum lengi saman... Þá var kominn tími á mig að fara að sofa.

05.06.06

Ég er að fara heim!!!!!!!!!

Vaknaði 08:30,sturtaði mig og athugaði hvort ekki allt væri komið...... jú allt komið. Fór niður í lobbí og ritaði mig út af hótelinu.

Pantaði taxa til að fara með mig á Liverpool str þar sem ég færi með lest til Standsted og heim.... Jú, það var geggjað að koma heim, þrátt fyrir geggjaða ferð en þá er alltaf gott að koma heim...... Þetta var gott, góðar stundir.


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Dagsetning
10. febrúar 2012
Klukkan